Mánudaginn 24. apríl komu eldri börnin í Krílabæ og 1. bekkur grunnskólans, ásamt kennurum sínum, í heimsókn í Barnaborg. Við tókum á móti gestunum í Sunnuborg, settumst saman í hring og kynntum okkur. Börnin töldu þó að við þekktumst alveg svo það væri jafnvel óþarfi. Líkt og í sambærilegri heimsókn í Krílabæ í haust var gaman að sjá 1. bekkinga heimsækja leikskólann og upplifa hvað þau eru orðin stór.
Þessar heimsóknir eru liður í samvinnu starfsstöðva Þingeyjarskóla og styðja við samfellu í skólagöngu barnanna.
Þingeyjarskóla að Hafralæk | 641 Húsavík Sími: 464-3590 Farsími: 862 - 6483
|
Leikskólastjóri: Jóhann Rúnar Pálsson johannrunar@thingeyjarskoli.is Deildarstjóri: Nanna Marteinsdóttir nanna@thingskoli.is
|
Tilkynningar um leyfi eða veikindi barna: 464 3590 / 862 6483