    <language>is</language>
Þingeyjarskóli
Svakalega lestrarkeppnin
Niðurstöður úr Svakalegu lestrarkeppninni eru komnar.  Nemendur  í 1. - 7. bekk Þingeyjarskóla tóku þátt og  stóðu sig frábærlega og höfnuðu í 24. sæti af  106 skólum sem tóku þátt.
Samanlagt lásu nemendurnir okkar í tæplega 30 þúsund mínútur, sem er sannarlega glæsilegur árangur hjá þeim. Umræðan hjá okkur í morgun var á þá leið að taka aftur þátt á næsta ári og  stefna á að gera enn betur.
Við erum afskaplega stolt af nemendum okkar.
Takk kærlega fyrir stuðninginn við lestur barnanna heima.]]></description>
Að láta rödd sína heyrast
Þegar nemendur á miðstigi fréttu að leggja ætti niður sjónvarspsþáttinn Kappsmál ákvaðu þeir að láta í sér heyra. Þeir skrifuðu dagskrárstjóra bréf þar sem þeir lýstu skoðunum sínum og færðu rök fyrir því að þátturinn ætti að halda áfram. Um leið fóru þeir í gegnum það hvernig bréf eru byggð upp og hvað greinir formleg bréf frá persónulegum. Þarna gafst gott tækifæri til að tengja námið við umræðuna í samfélaginu og sýna nemendum hvernig þeir geta komið skoðunum sínum á framfæri. ]]></description>
Alþjóðlegi læsisdagurinn
Alþjóðlegur dagur læsis er í dag, 8. september. 
Af því tilefni var STÁSS stund í Þingeyjarskóla. 
Tónlistardeildin hóf daginn með nemendum og saman sungu þau nokkur íslensk lög. 
Að því loknu tóku nemendur og starfsfólk þátt í yndislestri þar sem allir settust niður, lásu í hljóði og nutu stundarinnar. Einnig gátu nemendur hlýtt á upplestur í einni stofunni.
Læsi birtist með fjölbreyttum hætti í daglegu lífi okkar og nær meðal annars til lesturs, hlustunar, tals og ritunar. Við hvetjum nemendur og fjölskyldur þeirra til að gefa sér tíma til að lesa, ræða saman, hlusta og njóta tungumálsins. Slíkar stundir efla orðaforða, skilning og tjáningu og geta um leið veitt bæði gleði og ánægju.
Breyting á námsumsjónakerfi Þingeyjarskóla
Laust starf skólaliða (blandað starf) í Þingeyjarskóla
      <description><![CDATA[Viltu vinna í skemmtilegu umhverfi, með frábærum nemendum og með góðu samstarfsfólki? 
Ef svo er ættir þú að íhuga starf í Þingeyjarskóla.
Við viljum fá til liðs við okkur:
Skólaliða (blandað starf) í 100% starf frá og með 15. ágúst.
Við leitum að skólaliða sem:
•	Treystir sér í faglega og metnaðarfulla vinnu
•	Er lausnamiðaður
•	Er sveigjanlegur og með góða samskiptahæfni
•	Er sjálfstæður í vinnubrögðum og sýnir/býr yfir frumkvæði
•	Hefur metnað til að takast á við ný og spennandi verkefni
•	Vill taka þátt í samstarfi og teymisvinnu
•	Ber virðingu fyrir börnum og hefur áhuga á að starfa með þeim
Þingeyjarskóli er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli með rétt um 90 nemendur. Þar af um 30 leikskólanemendur á tveimur starfsstöðvum. Áhersla er lögð á teymisvinnu og fjölbreytta kennsluhætti innan skólans sem og að skapa leik- og námsumhverfi sem auðgar bernsku barna og örvar þroska þeirra.
Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna á verkefnum skólans.
Gerðar eru kröfur um mikla hæfni í mannlegum samskiptum, stundvísi og hreint sakavottorð.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsóknir skulu sendast á netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is 
Nánari upplýsingar veitir Jóhann Rúnar Pálsson skólastjóri grunnskóla- og tónlistardeildar í vs. 4643580 /8990702 eða í gegnum netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is 
Skólasetning verður kl. 16:30 föstudaginn 21. ágúst n.k.
Vegleg gjöf Sparisjóðs Suður Þingeyinga
      <description><![CDATA[Læsismánuður í Þingeyjarskóla tókst vel
Í febrúar lögðu nemendur og starfsfólk Þingeyjarskóla sérstaka áherslu á lestur og lestrartengda vinnu þegar skólinn stóð fyrir lestrarátaki undir yfirskriftinni Læsismánuður.
Markmið átaksins var að efla lestraráhuga, hvetja til aukins lesturs og skapa jákvæða umræðu um mikilvægi læsis í skólasamfélaginu. Nemendur tóku virkan þátt í fjölbreyttum verkefnum og áskorunum sem tengdust lestri, bókum og lestrarmenningu.
Óhætt er að segja að verkefnið hafi tekist mjög vel. Það var bæði ánægjulegt og hvetjandi að fylgjast með nemendum og starfsfólki taka þátt af krafti, lesa, ræða bækur og takast á við skemmtilegar lestrartengdar áskoranir.
Í tengslum við verkefnið færði Sparisjóður Suður-Þingeyinga skólanum veglega peningagjöf sem nýtt var til bókakaupa fyrir bókasafn skólans. Gjöfin mun styrkja bókakost skólans og nýtast nemendum vel til framtíðar.
Þingeyjarskóli þakkar Sparisjóði Suður-Þingeyinga kærlega fyrir þetta rausnarlega framlag og þá jákvæðni sem sparisjóðurinn sýndi verkefninu. Stuðningur sem þessi skiptir miklu máli og stuðlar að því að efla læsi, lestrargleði og fjölbreytta lestrarmenningu meðal nemenda.]]></description>
Frábær árangur nemenda í lesskilningi og stærðfræði
Nemendur í 4. til 10. bekk skólans þreyttu stöðu- og framvindupróf í lesskilningi og stærðfræði í mars síðastliðnum og sýndu svo sannarlega hvað í þeim bjó. Niðurstöðurnar voru frábærar og erum við ákaflega  stolt af árangri nemenda okkar.
Viðmiðunartölur á landsvísu eru þannig að 21% nemenda mældust undir meðaltali, 58% voru á eða í kringum meðaltal og 21% nemenda mældust yfir meðaltali. 
Í lesskilningi  mældust 45% nemenda Þingeyjarskóla yfir meðaltali, sem var meira en tvöfalt hærra hlutfall en landsmeðaltalið. Þá voru 52% nemenda á eða við meðaltal, og aðeins 2% nemenda mældust undir meðaltali.
Í stærðfræðiprófinu mældust 31% nemenda okkar yfir meðaltali, sem var hreint út sagt frábært. Jafnframt voru 51% nemenda á eða við meðaltal og einungis 18% mældust undir meðaltali, sem var einnig undir landsmeðaltalinu. 
Til hamingju öll með þennan stórkostlega árangur.
Skólaslit Þingeyjarskóla
      <description><![CDATA[Skólaslit Þingeyjarskóla verða 1. júní kl. 16:30 í Ýdölum.
Allir velkomnir.]]></description>
Yngsta stig fræðist um humlur
Undanfarnar vikur hafa nemendur á yngsta stigi fræðst um humlur og lifnaðarhætti þeirra.
Bókin “Milli himins og jarðar - humlur” var aðal lesefnið og unnu nemendur margvísleg verkefni í tengslum við efnið. Auk þeirra sýnishorn sem eru hér í fréttinni unnu nemendur myndbandsverkefni sem kallast “Lífsferill humlur - frá eggi að flugu” og kom virkilega skemmtilega út. Það hefur verið gaman að fylgjast með nemendum í þessari vinnu og sjá hversu áhugasamir og fróðleiksfúsir þeir hafa verið. Verkefnin eru til sýnis á ganginum fyrir framan stofur yngsta stigs og hvetjum við ykkur til að stoppa við og fræðast um humlur ef þið eigið leið um skólann. (Smellið á fyrirsögnina til að sjá myndir af verkefnum nemenda)]]></description>
Unglingastig kynnir jarðfræði fyrir gestum og gangandi
      <description><![CDATA[Síðastliðnar vikur hafa nemendur á unglingastigi lagt hart að sér í metnaðarfullu samþættingarverkefni samfélags- og náttúrugreina. Markmiðið var að útskýra flókin jarðfræðileg fyrirbæri á þann hátt að fólk á öllum aldri gæti bæði fræðst og haft gaman. Til þess að gera verkefnið enn áhugaverðara þá var lagt upp með að nota einungis endurnýttan efnivið og afganga.
Marimbaferð unglingastigs Þingeyjarskóla
Minningarorð 
      <description><![CDATA[Minningarorð um Halldóru Jónsdóttur kennara
Opið hús hjá framhaldsskólum í nágrenni Þingeyjarskóla
      <description><![CDATA[Nú styttist óðum í að innritun nýnema í framhaldsskóla hefjist, en opnað verður fyrir umsóknir á föstudaginn 24. Apríl og stendur það yfir til 10. júní. Það er því tilvalið að nýta næstu daga til að skoða þá valmöguleika sem í boði eru.
Í meðfylgjandi skjali er að finna upplýsingar um opin hús hjá skólunum í nágrenni okkar. Foreldrar nemenda í 10. bekk eru hvattir til að kynna sér námið, skoða aðstöðuna og finna fyrir andrúmsloftinu á hverjum stað:
Breyting á tímasetningu Vorgleði Þingeyjarskóla
      <description><![CDATA[Vakin er athygli á því að Vorgleði Þingeyjarskóla hefst kl. 15:00 fimmtudaginn 26.03.2026. 
Í ljósi veðurútlits hefur verið ákveðið að flýta Vorgleði Þingeyjarskóla til kl. 15:00 í stað kl. 17:00. Er þetta gert með hliðsjón af því að nemendur séu þá allir í skólanum og ekki verið að ferðast með yngri nemendur á milli kl. 15 og 17.]]></description>
Þingeyjarskóli með góðan árangur í Lífshlaupinu.
Við fengum góðan gest í vikunni,hann Ísak Aðalsteinsson sem afhenti skólanum verðlaun fyrir góðan árangur í Lífshlaupinu 2026.]]></description>
Vorgleði Þingeyjarskóla
Vorgleði Þingeyjarskóla..........
Læsismánuður
Læsismánuður
Í febrúar fórum við í átak í lestri og kölluðum læsismánuðinn. Nemendur og starfsfólk lagði sérstaka áherslu á lestur og lestrartengda vinnu. Óhætt er að segja að þetta tókst vel til og frábærlega gaman að fylgjast með nemendum okkar og starfsfólki keppast við lestur og lestrartengdar áskoranir.]]></description>
Barnaborg fékk veglega gjöf frá Kvenfélagi Aðaldæla
Í Gulustofu í Barnaborg eru komin upp húsgögn sem efla grófhreyfiþroska barna. Brautin þótti strax mjög spennandi. Ætlunin er að þessi húsgögn verði hluti af námsumhverfinu í stofunni á hverjum degi og hvetji börnin til fjölbreyttrar hreyfingar.
Við...]]></description>