Leikskólinn Barnaborg um 25 barna leikskóli, til húsa í suðurenda Þingeyjarskóla að Hafralæk í Aðaldal.
Börn á aldrinum níu mánaða til sex ára eiga vistun í Barnaborg. Leikskólastarfið byggir á lögum um leikskóla, Aðalnámskrá leikskóla 2011 og skólastefnu Þingeyjarsveitar.
Leikskólastarfið er byggt í kringum frjálsan leik barnanna með áherslu á útiveru, náttúruna, sköpun með fjölbreyttan efnivið og allt það nám sem fram fer í samskiptum barnanna, hvert við annað og hina fullorðnu.
Leikskólinn vinnur náið með grunnskóladeild Þingeyjarskóla um samfellu milli skólastiga og tónlistar- og íþróttakennslu fyrir börnin.
Í leikskólanum vinna 5 starfsmenn við umönnun barnanna
Leikskólastjóri er Jóhann Rúnar Pálsson, deildarstjóri er Nanna Marteinsdóttir. Hér má finna lista yfir starfsfólk skólans.