Leikskólinn Barnaborg er um 25 barna leikskóli, til húsa í suðurenda Þingeyjarskóla í Aðaldal.
Börn á aldrinum eins til sex ára eiga vistun í Barnaborg. Leikskólastarfið byggir á lögum um leikskóla, Aðalnámskrá leikskóla 2011 og skólastefnu Þingeyjarsveitar.
Leikskólastarfið er byggt í kringum sjálfsprottinn leik barnanna með áherslu á útiveru og sköpunarferli með fjölbreyttan efnivið.
Leikskólinn vinnur náið með grunnskóladeild Þingeyjarskóla um samfellu milli skólastiga og tónlistar- og íþróttakennslu fyrir börnin.
Í leikskólanum vinna 8 starfsmenn við umönnun barnanna, í móttökueldhúsi og við þrif.
Leikskólinn er opinn frá 7:45-16:15
Leikskólastjóri er Nanna Marteinsdóttir. Verkefnastjóri yngri barna er: Ásta Margrét Rögnvaldsdóttir. Verkefnastjóri eldri barna er Karen Ósk Kristjánsdóttir