Ísland áður fyrr

Ísland áður fyrr

Þessa dagana eru nemendur í 3. og 4. bekk að vinna að þemaverkefninu Ísland áður fyrr. Verkefnið skiptist í 3 hluta:

  • Fjölskylduna (fjölskyldan, föt, leikir og afþreying)
  • heimilið (torfbærinn, inni og úti)
  • störfin (árstíðabundin verk)

Við erum að fjalla um 1. hlutann og fengum við í heimsókn Ellu í Norðurhlíð. Hún sýndi okkur ýmislegt sem viðkom tóvinnu. Meðal annars fengu allir nemendur að prufa að kemba ull og spinna ullarband á rokk.

Þessi heimsókn var frábær í alla staði.