Ævintýrið á aðventunni

List fyrir alla með sýningu fyrir börn á yngsta stigi í Ýdölum fimmtudaginn 24.11.2022. Fengum í leiðinni heimsókn frá nemendum 1. – 4. Reykjahlíðarskóla sem tóku þátt í sýningunni með okkur.

Ævintýri á aðventunni er ætlað fyrir 1. – 4. bekk þar sem tríóið Björk Níelsdóttir, Erla Dóra Vogler og Jón Þorsteinn Reynisson  skralla aðeins um jólin.  Ævintýri á aðventunni er nýr gleðilegur jólasöngleikur eftir Þórunni Guðmundsdóttur og er samstarfsverkefni Sviðslistahópsins Hnoðri í norðri og List fyrir alla

Nánari upplýsingar um viðburðinn má finna á heimasíðu List fyrir alla

https://listfyriralla.is/event/aevintyri-a-adventunni/