Breyting á tímasetningu Vorgleði Þingeyjarskóla

Í ljósi veðurútlits hefur verið ákveðið að flýta Vorgleði Þingeyjarskóla til kl. 15:00 í stað kl. 17:00. Er þetta gert með hliðsjón af því að nemendur séu þá allir í skólanum og ekki verið að ferðast með yngri nemendur á milli kl. 15 og 17.

Sund fellur niður á morgun hjá yngsta stigi.

Við munum bjóða nemendum okkar uppá hressingu fyrir sýninguna.

Skólabílstjórar munu sjá um akstur heim að lokinni sýningu. Það eru allir velkomnir sem geta mætt kl. 15:00. Við reiknum með að skemmtuninni ljúki um kl. 17:30-18:00.

Beðist er velvirðingar á þessu og vonum við að þó þetta sé með skömmum fyrirvara, hafi sem flestir möguleika á að koma á sýninguna.

Það verður streymt beint frá sýningunni og mun verða mögulegt að nálgast upptökuna í nokkra daga frá sýningardegi.

Tengill inn á streymi:

http://twitch.tv/hljodveridbruar