Frá Tónlistardeild Þingeyjarskóla.

Vortónleikar Tónlistardeildar Þingeyjarskóla voru haldnir í Ýdölum miðvikudaginn 14. maí. Fjölmargir nemendur komu fram og stóðu sig með stakri prýði.

Nú er hægt að sækja um tónlistarnám fyrir næsta vetur. Innritunarblöð hafa þegar verið send á forráðamenn nemenda grunnskóladeildar og einnig er hægt að hafa samband við deildarstjóra á netfangið petur@thingskoli.is