Frábær árangur nemenda í lesskilningi og stærðfræði

Frábær árangur nemenda í lesskilningi og stærðfræði
Nemendur í 4. til 10. bekk skólans þreyttu stöðu- og framvindupróf í lesskilningi og stærðfræði í mars síðastliðnum og sýndu svo sannarlega hvað í þeim bjó. Niðurstöðurnar voru frábærar og erum við ákaflega stolt af árangri nemenda okkar.
Viðmiðunartölur á landsvísu eru þannig að 21% nemenda mældust undir meðaltali, 58% voru á eða í kringum meðaltal og 21% nemenda mældust yfir meðaltali.
Í lesskilningi mældust 45% nemenda Þingeyjarskóla yfir meðaltali, sem var meira en tvöfalt hærra hlutfall en landsmeðaltalið. Þá voru 52% nemenda á eða við meðaltal, og aðeins 2% nemenda mældust undir meðaltali.
Í stærðfræðiprófinu mældust 31% nemenda okkar yfir meðaltali, sem var hreint út sagt frábært. Jafnframt voru 51% nemenda á eða við meðaltal og einungis 18% mældust undir meðaltali, sem var einnig undir landsmeðaltalinu.
Til hamingju öll með þennan stórkostlega árangur.