Barnaborg fékk veglega gjöf frá Kvenfélagi Aðaldæla

Húsgögn sem örva börnin til að hreyfa sig og styrkja grófhreyfiþroska
Húsgögn sem örva börnin til að hreyfa sig og styrkja grófhreyfiþroska

Í Gulustofu í Barnaborg eru komin upp húsgögn sem efla grófhreyfiþroska barna. Brautin þótti strax mjög spennandi. Ætlunin er að þessi húsgögn verði hluti af námsumhverfinu í stofunni á hverjum degi og hvetji börnin til fjölbreyttrar hreyfingar.

Við erum Foreldrafélagi Barnaborgar þakklát fyrir að hafa átt frumkvæði að því að leita til Kvenfélagsins sem fúslega styrkti okkur um veglega upphæð, 150.000 krónur, til að kaupa þessi húsgögn. Áður hefur Kvenfélagið styrkt skólann og gaf Barnaborg t.d. veglega innflutningsgjöf haustið 2019, þegar leikskólinn flutti í nýtt húsnæði.

Það er afar dýrmætt fyrir skólastarfið að eiga slíkan bakhjarl í samfélaginu og hvetur okkur til dáða að gera ennþá betur í starfinu með börnunum.

Bestu þakkir til Kvenfélags Aðaldæla og foreldra við Barnaborg.