Laus störf við Þingeyjarskóla

Störf við grunnskóladeild og mötuneyti Þingeyjarskóla.

Þingeyjarskóli auglýsir eftir:

Skólaliða í 100% starf.

Skólaliða í 80% starf

Stuðningsfulltrúa á yngsta stigi í 80 - 90% starf

Matráð í 60 - 80% starf

Við leitum að starfsmönnum sem: 

 

  • Treysta sér í faglega og metnaðarfulla vinnu 
  • Eru lausnamiðaðir
  • Eru sveigjanlegir og með góða samskiptahæfni 
  • Eru sjálfstæðir í vinnubrögðum og sýna/búa yfir frumkvæði 
  • Hafa metnað til að takast á við ný og spennandi verkefni 
  • Vilja taka þátt í samstarfi og teymisvinnu 
  • Bera virðingu fyrir börnum og hafa áhuga á að starfa með þeim

 

Þingeyjarskóli er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli með rétt um 100 nemendur. Þar af tæplega 30 leikskólanemendur á tveimur starfsstöðvum.  Áhersla er lögð á teymisvinnu og fjölbreytta kennsluhætti innan skólans sem og að skapa leik- og námsumhverfi sem auðgar bernsku barna og örvar þroska þeirra.

Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna á verkefnum skólans.   

Gerðar eru kröfur um mikla hæfni í mannlegum samskiptum, stundvísi og hreint sakavottorð. 

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. 

 

Umsóknarfrestur er til 6. júlí 2022.

Umsóknir skulu sendast á netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is

Nánari upplýsingar veitir Jóhann Rúnar Pálsson skólastjóri í vs. 4643580/gsm 8990702 eða í gegnum netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is