Umsóknarfrestur framlengdur til 25. maí: Leikskóladeildir Þingeyjarskóla auglýsa eftir leikskólakennurum

Leikskóladeildir Þingeyjarskóla auglýsa eftir leikskólakennurum frá 13. ágúst 2025 eða eftir nánara samkomulagi.

Um er að ræða 70 – 100% ótímabundnar stöður við Barnaborg í Aðaldal og Krílabæ á Laugum í Reykjadal.  Leitað er að kennurum með þekkingu og reynslu af leikskólakennslu og mikla hæfni í samskiptum. Í skólanum er unnið eftir stefnunni um jákvæðan aga, áhersla lögð á tækifæri barna til listsköpunar úr margvíslegum efnivið og útiveru í fjölbreyttri náttúru umhverfis skólann. Umsóknarfrestur er framlengdur til 25. maí.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt stefnu og skipulagi skólans undir stjórn yfirmanns
  • Vinna í nánu samstarfi við foreldra/forráðafólk nemenda
  • Taka þátt í samstarfi við ýmsar stofnanir og sérfræðinga sem tengjast leikskólanum í samráði við yfirmann
  • Sinna verkefnum er varða uppeldi og menntun nemenda sem yfirmaður felur honum

 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun, uppeldismenntun eða önnur menntun og hæfni sem nýtist í starfi
  • Virðing fyrir börnum og sjálfsprottnum leik þeirra
  • Færni í samskiptum
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Starfsreynsla í leikskóla er mikill kostur

 

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags. Gerð er krafa um hreint sakavottorð. Ef enginn kennaramenntaður einstaklingur sækir um verða aðrar umsóknir skoðaðar.

Umsóknarfrestur er framlengdur til 25. maí.  Frekari upplýsingar gefur leikskólastjóri, Nanna Marteinsdóttir í síma 464-3590/ 898-0790 eða í gegnum tölvupóstfangið nanna@thingskoli.is.

Umsóknir skulu sendast á tölvupóstfang leikskólastjóra nanna@thingskoli.is. Með umsókn skal fylgja greinargóð ferilskrá, afrit af leyfisbréfi, kynningarbréf og upplýsingar um meðmælendur.