Marimbaferð unglingadeildar Þingeyjarskóla
Unglingadeild Þingeyjarskóla er nú stödd í marimbaferð í Svíþjóð og hefur ferðin farið vel af stað. Hópurinn lagði af stað suður aðfaranótt þriðjudagsins síðastliðinn og gekk ferðalagið vel, þó svefninn hafi verið misjafn eins og oft vill verða á slíkum ferðum. Komið var í Leifsstöð um klukkan fjögur að morgni og þaðan flogið til Kaupmannahafnar.
Hópurinn lenti í Kaupmannahöfn um hálfeitt að staðartíma. Þaðan var tekin lest á Hovedbanegården og haldið á gististað. Eftir komuna fengu nemendur frjálsan tíma í miðbænum fram að kvöldmat. Um kvöldið fór allur hópurinn saman út að áður en kvöldið var tekið rólega eftir langan ferðadag.
Daginn eftir hófst dagurinn á morgunverði á „hostelinu“ í Kaupmannahöfn áður en hópurinn skráði sig út klukkan tíu. Þaðan var haldið rakleitt á Hovedbanegården þar sem keyptir voru lestarmiðar til Åstorp í Svíþjóð. Lestin lagði af stað klukkan tólf og um klukkan 13:45 var hópurinn kominn til Åstorp, eftir lestarskipti í Ramlösa.
Í Åstorp tók Tomas Lindquist á móti hópnum, en hann hefur séð um undirbúning og skipulag ferðarinnar á staðnum. Hópurinn kom sér fyrir í skátaheimili þar sem gist er, áður en frjáls tími gafst fram að kvöldmat. Eftir sameiginlegan kvöldverð á veitingastað aðstoðuðu nokkrir nemendur Tomas við að flytja hljóðfærin úr skólanum og yfir í skátaheimilið.
Deginum lauk síðan með marimbaæfingu þar sem hópurinn stillti saman strengi og undirbjó sig fyrir komandi verkefni. Fram undan er viðburðaríkur dagur en ræs verður klukkan sjö að morgni.
Ferðin hefur farið vel af stað og nemendur sýnt góða framkomu, jákvæðni og hjálpsemi. Þau hafa öll verið Þingeyjarskóla til mikils sóma.
Bestu kveðjur úr sænska vorinu.