Við í Þingeyjarskóla minnumst með hlýhug og virðingu Halldóru Jónsdóttur, kennara, sem lést 21. apríl síðastliðinn, 78 ára að aldri. Halldóra fæddist 31. mars 1948 og átti langa og farsæla starfsævi innan skólasamfélagsins okkar.
Halldóra hóf störf við Hafralækjarskóla haustið 1972, frá upphafi skólans og tengdist skólanum með einum eða öðrum hætti um áratugaskeið. Þó hún hafi tekið hlé frá störfum á tímabilum lá leið hennar jafnan aftur í skólann. Síðar starfaði hún við Þingeyjarskóla og síðast sem stundakennari veturinn 2015–2016.
Það er einstakt að líta til baka og sjá hversu djúp spor Halldóra hefur skilið eftir í skólasamfélaginu. Fjölmargir nemendur, foreldrar og samstarfsfólk hafa notið leiðsagnar hennar, hlýju og fagmennsku í gegnum árin. Margir innan samfélagsins minnast hennar sem farsæls kennara sem sinnti starfi sínu af alúð, festu og umhyggju.
Við þökkum Halldóru fyrir hennar mikilvæga framlag til skólastarfsins á Hafralæk og síðar í Þingeyjarskóla. Minning hennar lifir í hugum þeirra sem hún kenndi, studdi og hafði áhrif á.
Aðstandendum Halldóru sendum við innilegar samúðarkveðjur.
Fyrir hönd Þingeyjarskóla,
Jóhann Rúnar Pálsson