Stóra upplestrarkeppnin

Þann 7. apríl tóku nemendur 7. bekkjar Þingeyjarskóla þátt í Stóru upplestrarkeppninni á Húsavík. Þátttakendur í keppninni eru skólar allt frá Langanesbyggð til Skútustaðahrepps. Fyrir hönd Þingeyjarskóla kepptu þau Auður Friðrika og Þráinn Maríus. Það er skemmst frá því að segja að Þráinn Maríus hafnaði í þriðja sæti og Auður Friðrika í því fyrsta. Glæsilegur árangur hjá þessu unga fólki. Eins var tónlistaratriði frá Þingeyjarskóla þar sem Hilmar Örn spilaði á gítar. Stóð hann sig með stakri prýði. Allir nemendur miðstigs fóru til Húsavíkur og hlýddu á upplesturinn, við gerðum dag úr viðburðnum og fórum út að borða að keppni lokinni. Allir nemendur stóðu sig vel og voru okkur til sóma. Mikið sem við erum stolt af börnunum okkar.

upplestrarke

upplestrarkeppnin

upplestur