Þingeyjarleikarnir fóru fram í Þingeyjarskóla í dag en þá hittast nemendur og starfsfólk grunnskólanna þriggja og eiga góða stund saman.
Þetta hefur verið árviss viðburður frá sameiningu sveitarfélaganna með það að markmiði að efla tengsl nemenda og starfsfólks skólanna þriggja. Nú var röðin komin að Þingeyjarskóla að
skipuleggja leikana og bjóða heim. Nemendum var skipt í hópa þvert á stig og skóla og leystu þeir allskyns þrautir sem byggðust á hugmyndum fjölgreindarkenningar Gardners.
Í stuttu máli má lýsa fjölgreindakenningunni með þeim hætti að greind fólks skiptist í átta svið: Málgreind, rök- og stærðfræðigreind, hreyfigreind, rýmisgreind, tónlistargreind, samskiptagreind, sjálfsþekkingargreind og umhverfis- eða náttúrugreind. Gardner telur greind hvers einstaklings skiptast í þessi átta svið en einstaklingsbundið sé hver styrkur hvers sviðs sé miðað við önnur. Þannig liggja styrkleikar einstaklinganna á ólíkum sviðum.
Á stöðvum dagsins var unnið með öll átta greindarsviðin þar sem markmiðið var að allir næðu að njóta sín og nýta styrkleikana sína.
Í lok dags var smellt mynd af hópnum og var ekki annað að sjá en að allir hefðu notið
samverunnar.