Þingeyjarskóli auglýsir eftir íþróttakennara.

Þingeyjarskóli auglýsir eftir íþróttakennara í 100% starf frá 1. ágúst 2025.

Við leitum að kennara sem:

  • Er umhugað um velferð barna og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins.
  • Hefur afburða góða samskiptahæfni og metnað til að takast á við fjölbreytt verkefni með nemendum.
  • Hefur áhuga á skólaþróun og skapandi kennsluháttum.
  • Er jákvæður og sveigjanlegur, sjálfstæður í vinnubrögðum og sýnir frumkvæði.
  • Er samstarfsfús og lausnamiðaður og tilbúinn að takast á við ný og spennandi verkefni í samstarfi og teymisvinnu.
  • Er með viðeigandi menntun eða menntun sem nýtist í starfi.

Þingeyjarskóli er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli með rétt um 100 nemendur. Þar af tæplega 30 leikskólanemendur á tveimur starfsstöðvum. Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna á verkefnum skólans.

Þingeyjarskóli styðst við uppeldisstefnu Jákvæðs aga. Áhersla er lögð á teymisvinnu og fjölbreytta kennsluhætti og þá er rík tónlistarhefð við skólann.

Gerðar eru kröfur um mikla hæfni í mannlegum samskiptum, stundvísi og hreint sakavottorð.

Umsóknarfrestur er til og með 25. apríl 2025 og skulu umsóknir berast á netfangið lilja@thingskoli.is

Nánari upplýsingar veitir Lilja Friðriksdóttir skólastjóri í síma 464 3580 / 847 2372 eða í gegnum netfangið lilja@thingskoli.is