Þingeyjarskóli auglýsir eftir kennurum.

Þingeyjarskóli í Þingeyjarsveit auglýsir eftirfarandi stöður lausar til umsóknar:

Staða grunnskólakennara (100%)

Staða textílkennara (50-60%)

Staða tónlistarkennara (100%)

Við leitum að kennurum sem:

-          Treysta sér í faglega og metnaðarfulla vinnu

-          Hafa lausnamiðaða nálgun á viðfangsefnum

-          Eru sveigjanlegir og með góða samskiptahæfni

-          Eru sjálfstæðir í vinnubrögðum og sýna/búa yfir frumkvæði

-          Hafa metnað til að takast á við ný og spennandi verkefni

-          Vilja taka þátt í teymisvinnu

 

Þingeyjarskóli er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli með rétt um 100 nemendur.  Þar af tæplega 30 leikskólanemendur á tveimur starfsstöðvum.

Áhersla er lögð á teymisvinnu og fjölbreytta kennsluhætti innan skólans.

Rík tónlistarhefð er við skólann og allt tónlistarnám fer fram á skólatíma. Af 70 nemendum grunnskóladeildar eru rúmlega 50 nemendur í hljóðfæra og söngnámi við tónlistardeildina.

Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna á verkefnum skólans.

Þingeyjarskóli styðst við uppeldisstefnuna Jákvæður agi.  

Gerðar eru kröfur um mikla hæfni í mannlegum samskiptum, stundvísi og hreint sakavottorð.

Möguleiki er á húsnæði á staðnum.

Stöðurnar eru lausar frá og með 1. ágúst 2022

Umsóknarfrestur er til 25. maí 2022

Umsóknir skulu sendast á netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is

Nánari upplýsingar veitir Jóhann Rúnar Pálsson skólastjóri í vs 4643580 /8990702 eða í gegnum netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is