Þingeyjarskóli auglýsir eftir leikskólakennurum.

 

Þingeyjarskóli í Þingeyjarsveit auglýsir eftir leikskólakennurum við leikskóladeildina Barnaborg. 

 

Við leitum að kennurum sem: 

 

  • Hafa kennaramenntun og leyfisbréf á viðkomandi skólastigi
  • Treysta sér í faglega og metnaðarfulla vinnu 
  • Eru lausnamiðaðir
  • Eru sveigjanlegir og með góða samskiptahæfni 
  • Eru sjálfstæðir í vinnubrögðum og sýna/búa yfir frumkvæði 
  • Hafa metnað til að takast á við ný og spennandi verkefni 
  • Vilja taka þátt í samstarfi og teymisvinnu 
  • Bera virðingu fyrir börnum og hafa áhuga á að starfa með þeim

 

Þingeyjarskóli er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli með rétt um 100 nemendur. Þar af tæplega 30 leikskólanemendur á tveimur starfsstöðvum (Barnaborg og Krílabær).  Áhersla er lögð á teymisvinnu og fjölbreytta kennsluhætti innan skólans sem og að skapa leik- og námsumhverfi sem auðgar bernsku barna og örvar þroska þeirra. Þingeyjarskóli vinnur með agastefnuna Jákvæður agi. Rík tónlistarhefð er við skólann. 

 Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna á verkefnum skólans.   

 Gerðar eru kröfur um mikla hæfni í mannlegum samskiptum, stundvísi og hreint sakavottorð. 

 Haustið 2019 flutti leikskóladeildin í nýtt og glæsilegt húsnæði.

 

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. 

Möguleiki er á hlutastörfum.

Stöðurnar eru lausar frá og með 1. janúar 2022.

 Umsóknarfrestur er til 15. desember 2021.  

 Umsóknir skulu sendast á netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is

 Nánari upplýsingar veitir Jóhann Rúnar Pálsson skólastjóri í vs 4643580 /8990702 eða í gegnum netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is