Þingeyjarskóli auglýsir eftir starfsfólki

Þingeyjarskóli í Þingeyjarsveit auglýsir eftir starfsfólki.

 

Leikskólakennara/leikskólastarfsmanni í 100% starf við leikskóladeildina Barnaborg á Hafralæk frá og með 1. ágúst. 

Leikskólakennara/leikskólastarfsmanni í 60-80% starf við leikskóladeildina Krílabæ á Laugum frá og með 1. ágúst.

Skólaliða í 80-100% starf frá og með 15. ágúst.

Yfirmatráði í 100% starf við mötuneyti Þingeyjarskóla á Hafralæk frá og með 1. ágúst.

Stuðningsfulltrúa í 80 – 100% starf við leikskóladeildina Barnaborg frá og með 1. ágúst.

Íþróttakennara í 100% starf frá og með 1. ágúst.

Afleysingastarfsfólk.

 

Við leitum að starfsfólki sem: 

 

  • Treystir sér í faglega og metnaðarfulla vinnu 
  • Er lausnamiðað
  • Er sveigjanlegt og með góða samskiptahæfni 
  • Er sjálfstætt í vinnubrögðum og sýnir/býr yfir frumkvæði 
  • Hefur metnað til að takast á við ný og spennandi verkefni 
  • Vill taka þátt í samstarfi og teymisvinnu 
  • Ber virðingu fyrir börnum og hefur áhuga á að starfa með þeim

 

Þingeyjarskóli er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli með rétt um 100 nemendur. Þar af tæplega 30 leikskólanemendur á tveimur starfsstöðvum.  Áhersla er lögð á teymisvinnu og fjölbreytta kennsluhætti innan skólans sem og að skapa leik- og námsumhverfi sem auðgar bernsku barna og örvar þroska þeirra.

Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna á verkefnum skólans.   

Gerðar eru kröfur um mikla hæfni í mannlegum samskiptum, stundvísi og hreint sakavottorð. 

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. 

 

Umsóknarfrestur er til 22. maí 2023.  

 

Umsóknir skulu sendast á netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is

 

Nánari upplýsingar veitir Jóhann Rúnar Pálsson skólastjóri í vs 4643580 /8990702 eða í gegnum netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is