Þingeyjarskóli auglýsir eftir starfsfólki

Þingeyjarskóli í Þingeyjarsveit auglýsir eftir starfsfólki.

 

Leikskólakennara við leikskóladeildina Barnaborg í 100% starf

Stuðningsfulltrúa/leikskólastarfskrafti við leikskóladeildina Barnaborg í 100% starf

Vegna forfalla afleysingakennara á yngsta stigi og á unglingastigi í 100% starf

Störfin eru laus frá og með 1. janúar

 

Við leitum að starfsfólki sem: 

 

Treystir sér í faglega og metnaðarfulla vinnu 

Er lausnamiðað

Er sveigjanlegt og með góða samskiptahæfni 

Er sjálfstætt í vinnubrögðum og sýna/búa yfir frumkvæði 

Hefur metnað til að takast á við ný og spennandi verkefni 

Vill taka þátt í samstarfi og teymisvinnu 

Ber virðingu fyrir börnum og hefur áhuga á að starfa með þeim

 

Þingeyjarskóli er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli með rétt um 100 nemendur. Þar af tæplega 30 leikskólanemendur á tveimur starfsstöðvum Barnaborg og Krílabæ.  Áhersla er lögð á teymisvinnu og fjölbreytta kennsluhætti innan skólans sem og að skapa leik- og námsumhverfi sem auðgar bernsku barna og örvar þroska þeirra. Rík tónlistarhefð er við skólann.

Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna á verkefnum skólans.   

Gerðar eru kröfur um mikla hæfni í mannlegum samskiptum, stundvísi og hreint sakavottorð. 

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. 

 

Umsóknarfrestur er til 28. desember.

Umsóknir skulu sendast á netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is

 

Nánari upplýsingar veitir Jóhann Rúnar Pálsson skólastjóri í vs 4643580 /8990702 eða í gegnum netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is