Þingeyjarskóli, laus störf skólaárið 2025-2026

Þingeyjarskóli er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli með um 100 nemendur. Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna á verkefnum skólans. 

Við Þingeyjarskóla eru lausar eftirfarandi stöður:

Aðstoð í eldhúsi í Þingeyjarskóla í Aðaldal


Um er að ræða tvær stöður:

  • 100% starfshlutfall.
  • 60% starfshlutfall.

Helstu verkefni:

  • Vinnur undir leiðsögn yfirmatráðs.
  • Þátttaka í matseld fyrir nemendur og starfsfólk Þingeyjarskóla.
  • Sér um að matur sé samkvæmt lýðheilsumarkmiðum, hollur, fjölbreyttur og snyrtilega framborinn.
  • Frágangur og þrif í eldhúsi og matsal.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun og reynsla sem nýtist í starfi er kostur.
  • Skipulagshæfni, snyrtimennska og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og frumkvæði í starfi.
  • Stundvísi og áreiðanleiki.

Umsóknarfrestur er til og með 5. júní 2025 og skulu umsóknir berast á netfangið lilja@thingskoli.is
Frekari upplýsingar um störfin veitir Lilja Friðriksdóttir, skólastjóri Þingeyjarskóla, í gegnum tölvupóst lilja@thingskoli.is og í síma 464-3580/847-2372.

Matseld í Krílabæ á Laugum

  • 35% staða við matseld í Krílabæ á Laugum með möguleika á auknu starfshlutfalli með viðveru á deild.


Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Elda og bera fram hollan og góðan hádegismat fyrir nemendur og starfsfólk Krílabæjar í samræmi við matseðil yfirmatráðs Þingeyjarskóla. U.þ.b. 10 manna hóp.
  • Ganga frá eftir matartíma.
  • Þrífa og sótthreinsa eldhús samkvæmt gæðahandbók mötuneytis Þingeyjarskóla.
  • Aðstoða yfirmatráð Þingeyjarskóla við pantanir fyrir Krílabæ.
  • Taka á móti vörum í eldhúsi Krílabæjar.

Við leitum að starfsfólki sem:

  • Vinnur eftir ítrustu kröfum um hreinlæti í skólamötuneyti og um rétta meðhöndlun matvæla.
  • Er lausnamiðað og á auðvelt með samvinnu.
  • Reynsla af störfum í mötuneyti er kostur.

Ræsting og þvottahús í Barnaborg, Þingeyjarskóla

  • 50% staða í Barnaborg í Aðaldal við ræstingar og í þvottahúsi skólans með möguleika á auknu starfshlutfalli með viðveru á deild.


Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Þrífa leikskólahúsnæði Barnaborgar daglega samkvæmt þrifaáætlun skólans.
  • Sjá um þvott Barnaborgar og skólamötuneytis í þvottahúsi skólans.

Við leitum að starfsfólki sem er:

  • Er skipulagt og áreiðanlegt.
  • Er lausnamiðað og á auðvelt með samvinnu.
  • Treystir sér til að laga þrif að fjölbreyttri starfsemi leikskólans.

Áhugasamir einstaklingar, án tilliti til kyns, eru hvattir til að sækja um. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf í ágúst.

Umsóknarfrestur er til og með 5. júní 2025 og skulu umsóknir berast á netfangið nanna@thingskoli.is

Frekari upplýsingar um störfin veitir Nanna Marteinsdóttir leikskólastjóri Þingeyjarskóla, í gegnum tölvupóst nanna@thingskoli.is og í síma 464-3590/898-0790