Myndband af verkefninu: Ýtið/smellið á meðfylgjandi hlekk til að skoða myndbandið :)
Síðastliðnar vikur hafa nemendur á unglingastigi lagt hart að sér í metnaðarfullu samþættingarverkefni samfélags- og náttúrugreina. Markmiðið var að útskýra flókin jarðfræðileg fyrirbæri á þann hátt að fólk á öllum aldri gæti bæði fræðst og haft gaman. Til þess að gera verkefnið enn áhugaverðara þá var lagt upp með að nota einungis endurnýttan efnivið og afganga.
Nemendum var skipt í fimm hópa og fékk hver hópur sitt viðfangsefni. Niðurstaðan varð fjölbreytt sýning þar sem hugmyndaflug og handverk fóru saman við jarðfræðinám.
Eldfjallið nýtur sín í smíðum eins hóps, sem smíðaði skúlptúr af eldfjalli og tengdi reykvél við það – þannig að gesturinn upplifi með fleiri skilningarvitum.
Viðkvæm náttúra var viðfangsefni annars hóps, sem bjó til skúlptúr sem sýnir tvær hliðar veruleikans – annars vegar dæmi um mengun af mannavöldum, hins vegar það hvernig við viljum að náttúran líti út þegar við skilum henni til næstu kynslóða.
Bergtegundir Íslands urðu að áskorun fyrir skilningarvitin þar sem gestir geta stungið höndinni inn í kassa og fundið muninn á ólíkum bergtegundum og geta reynt að giska á bergtegundina.
Laxárhraun, náttúruperlan sem umvefur skólann, var kortlagt í þrívídd. Hópurinn sýnir hvernig hraunið rann á tveimur mismunandi tímabilum og gefur þannig glögga mynd af jarðsögunni í bakgarðinum.
Jarðflekar urðu að handvirkri upplifun þar sem gestir geta dregið jarðflekana, sem Ísland liggur á, í sundur – og fundið sjálfir fyrir þeirri kraftmiklu hreyfingu sem mótað hefur landið okkar.
Það má með sanni segja að krökkunum hafi tekist ætlunarverk sitt því útkoman fangaði athygli ungra sem aldna. Yngri nemendur grunnskólans, leikskólabörn, eldri borgarar (sem hittast mánaðarlega í matsal skólans), kennarar og aðrir gestir sýndu verkunum mikla athygli. Verkefnið náði þannig að eignast líf utan skólastofunnar og hefur nú teygt sig út fyrir veggi skólans!
Námsmat verkefnisins var: Með spurningakönnunum, sjálfsmat og samvinnumat - auk mati kennarans.