Við kynnum með stolti Læsisstefnu Leikskóladeilda Þingeyjarskóla

Læsisstefna Leikskóladeilda Þingeyjarskóla er komin á heimasíðuna. Við erum afskaplega stolt af henni og teljum að bæði vinnan við gerð hennar og stefnan sjálf muni styrkja mjög starfið og foreldra í uppeldishlutverki sínu.

Stefnan var að mestu unnin starfsárið 2024-2025 og endurbætt og fínpússuð á haustönn 2025. Foreldrafélög Barnaborgar og Krílabæjar gáfu okkur mjög gagnlega og jákvæða umsögn og að lokum lagði Fræðslu- og velferðarnefnd Þingeyjarsveitar blessun sína yfir stefnuna. 

Við hvetjum öll til að lesa. Málþroski barna er grunnurinn að lestarnámi síðar meir og  það skiptir gríðarlega miklu máli að foreldrar og skóli sameinist um það mikilvæga verkefni að kenna börnunum að tala, skilja og lesa íslensku.