Vorgleði Þingeyjarskóla

Vorgleði Þingeyjarskóla verður haldin fimmtudaginn 28. mars kl. 20:00 í Ýdölum.
Sýnt verður leikritið Annie eftir Charles Strouse, Martin Charmin og Thomas Meehan í Þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar. Nemendur miðstigs og 1., 2. og 3. bekkja bera hitann og þungann af sýningunni. 

Miðaverð er 2.000 krónur fyrir fullorðna og 1.000 krónur fyrir börn á skólaaldri.

Frítt fyrir börn á leikskólaaldri og grunnskólanemendur Þingeyjarsveitar.

ATH. ekki er hægt að greiða með korti..

Allir hjartanlega velkomnir.

Nemendur og starfsfólk Þingeyjarskóla