Vorgleði Þingeyjarskóla

Vorgleði Þingeyjarskóla

                      

Vorgleði grunnskóla- og tónlistardeildar Þingeyjarskóla verður haldin að Ýdölum fimmtudaginn 23. mars og hefst klukkan 19:30.

Sýnt verður leikritið Fjarskaland eftir Guðjón Davíð Karlsson. Tónlistina samdi Vignir Snær Vigfússon. 

Nemendur miðstigs og  1., 2. og 3. bekkja hafa umsjón með sýningunni.

Miðaverð 2000 krónur fyrir fullorðna og 1000 krónur fyrir börn á skólaaldri.

Frítt fyrir börn á leikskólaaldri og grunnskólanemendur Þingeyjarsveitar.

ATH.! Ekki er hægt að greiða með korti.

Öll hjartanlega velkomin.

Nemendur og starfsfólk Þingeyjarskóla