Fréttir

Svakalega lestrarkeppnin

Niðurstöður úr Svakalegu lestrarkeppninni eru komnar. Nemendur í 1. - 7. bekk Þingeyjarskóla tóku þátt og stóðu sig frábærlega og höfnuðu í 24. sæti af 106 skólum sem tóku þátt. Samanlagt lásu nemendurnir okkar í tæplega 30 þúsund mínútur, sem er sannarlega glæsilegur árangur hjá þeim. Umræðan hjá okkur í morgun var á þá leið að taka aftur þátt á næsta ári og stefna á að gera enn betur. Við erum afskaplega stolt af nemendum okkar. Takk kærlega fyrir stuðninginn við lestur barnanna heima.