100 daga hátíð á yngsta stigi
06.02.2026
Miðvikudaginn 28. janúar var haldin 100 daga hátíð á yngsta stigi.
Á þeirri hátíð fögnuðum við því að nemendur 1. bekkjar voru búnir að vera í grunnskóla í 100 daga.
Nemendur leystu ýmsikonar áskoranir sem tengdust tölunni 100 og enduðu daginn svo á því að fá popp og djús og horfa á mynd.
Dagurinn lukkaðist mjög vel og ekki annað að sjá en að börnin skemmtu sér vel.
Látum myndirnar tala sínu máli.