29.09.2026
Þegar nemendur á miðstigi fréttu að leggja ætti niður sjónvarspsþáttinn Kappsmál ákvaðu þeir að láta í sér heyra. Þeir skrifuðu dagskrárstjóra bréf þar sem þeir lýstu skoðunum sínum og færðu rök fyrir því að þátturinn ætti að halda áfram. Um leið fóru þeir í gegnum það hvernig bréf eru byggð upp og hvað greinir formleg bréf frá persónulegum. Þarna gafst gott tækifæri til að tengja námið við umræðuna í samfélaginu og sýna nemendum hvernig þeir geta komið skoðunum sínum á framfæri.
08.09.2026
Alþjóðlegur dagur læsis er í dag, 8. september.
Af því tilefni var STÁSS stund í Þingeyjarskóla.
Tónlistardeildin hóf daginn með nemendum og saman sungu þau nokkur íslensk lög.
Að því loknu tóku nemendur og starfsfólk þátt í yndislestri þar sem allir settust niður, lásu í hljóði og nutu stundarinnar. Einnig gátu nemendur hlýtt á upplestur í einni stofunni.
Læsi birtist með fjölbreyttum hætti í daglegu lífi okkar og nær meðal annars til lesturs, hlustunar, tals og ritunar. Við hvetjum nemendur og fjölskyldur þeirra til að gefa sér tíma til að lesa, ræða saman, hlusta og njóta tungumálsins. Slíkar stundir efla orðaforða, skilning og tjáningu og geta um leið veitt bæði gleði og ánægju.