Fréttir

Leikskólakennari í framtíðarstarf

Viltu vinna í skemmtilegu umhverfi, með frábærum nemendum og með góðu samstarfsfólki? Ef svo er ættir þú að íhuga starf í Þingeyjarskóla.

Stáss tími í umsjón miðstigs

STÁSS-stund um Vigdísi Finnbogadóttur Nemendur á miðstigi sáu um STÁSS-stund vikunnar og kynntu afrakstur þemaverkefnis sem þau hafa unnið að undanfarnar vikur. Verkefnið fjallaði um Vigdísi Finnbogadóttur, fyrsta lýðræðislega kjörna kvenforseta heims. Hugmyndin um að læra um Vigdísi kom frá nemendum sjálfum í hugarstormi við upphaf skólaársins. Þau lögðu mikinn metnað í verkefnið og það var gaman að fá að kynnast Vigdísi betur með þeim.