06.02.2026
Miðvikudaginn 28. janúar var haldin 100 daga hátíð á yngsta stigi.
Á þeirri hátíð fögnuðum við því að nemendur 1. bekkjar voru búnir að vera í grunnskóla í 100 daga.
Nemendur leystu ýmsikonar áskoranir sem tengdust tölunni 100 og enduðu daginn svo á því að fá popp og djús og horfa á mynd.
Dagurinn lukkaðist mjög vel og ekki annað að sjá en að börnin skemmtu sér vel.
Látum myndirnar tala sínu máli.
16.01.2026
Í fyrstu kennsluviku janúarmánaðar kom Jón Pétur Úlfljótsson danskennari til okkar 28 árið í röð til að kenna nemendum Þingeyjarskóla hina ýmsu dansa. Venjan er sú að hann dvelur hjá okkur viku í senn og endar veru sína á því að stjórna danssýningu nemenda skólans. Óhætt er að segja að það er alltaf gleðiefni að fá Jón Pétur til okkar. Hann nær afar vel til allra og ánægjulegt að sjá til nemenda hjá honum í dansinum. Jón Pétur er að hefja sitt 40 starfsár sem danskennari og gaman að hann skuli byrja árið hjá okkur.
02.01.2026
Þingeyjarskóli óskar nemendum sínum, foreldrum þeirra og starfsfólki skólans gleðilegs nýs árs og með þökkum fyrir það liðna.