Fréttir

Breyting á námsumsjónakerfi Þingeyjarskóla

Í vor var tekin sú ákvörðun að skipta úr námsumsjónakerfinu Mentor yfir í Námfús. Ástæða þessa er sú að það kerfi er í hinum skólunum í sveitarfélaginu og þykir ekki síðra en Mentor. Við fengum þó fyrst aðgang að kerfinu í dag 18. ágúst, þannig að við höfum ekki getað nýtt okkar það í undirbúningsvinnunni. Sá böggull fylgir skammrifi að það þarf að yfirfæra ýmsar upplýsingar s.s. nöfn og netföng aðstandenda yfir í nýja kerfið. Því miður var ekki hægt að taka þau beint útúr Mentor kerfinu þannig að við erum að handvinna þetta inn í kerfið. Í einhverjum tilvikum erum við ekki með netfangalista aðstandenda og erum að ráða bót á því.

Laust starf skólaliða (blandað starf) í Þingeyjarskóla

Viltu vinna í skemmtilegu umhverfi, með frábærum nemendum og með góðu samstarfsfólki? Ef svo er ættir þú að íhuga starf í Þingeyjarskóla. Við viljum fá til liðs við okkur: Skólaliða (blandað starf) í 100% starf frá og með 15. ágúst. Við leitum að skólaliða sem: • Treystir sér í faglega og metnaðarfulla vinnu • Er lausnamiðaður • Er sveigjanlegur og með góða samskiptahæfni • Er sjálfstæður í vinnubrögðum og sýnir/býr yfir frumkvæði • Hefur metnað til að takast á við ný og spennandi verkefni • Vill taka þátt í samstarfi og teymisvinnu • Ber virðingu fyrir börnum og hefur áhuga á að starfa með þeim Þingeyjarskóli er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli með rétt um 90 nemendur. Þar af um 30 leikskólanemendur á tveimur starfsstöðvum. Áhersla er lögð á teymisvinnu og fjölbreytta kennsluhætti innan skólans sem og að skapa leik- og námsumhverfi sem auðgar bernsku barna og örvar þroska þeirra. Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna á verkefnum skólans. Gerðar eru kröfur um mikla hæfni í mannlegum samskiptum, stundvísi og hreint sakavottorð. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Umsóknir skulu sendast á netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is Nánari upplýsingar veitir Jóhann Rúnar Pálsson skólastjóri grunnskóla- og tónlistardeildar í vs. 4643580 /8990702 eða í gegnum netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is

Skólasetning verður kl. 16:30 föstudaginn 21. ágúst n.k.

Skólasetning fer fram í húsnæði grunnskóladeildarinnar.

Vegleg gjöf Sparisjóðs Suður Þingeyinga

Læsismánuður í Þingeyjarskóla tókst vel Í febrúar lögðu nemendur og starfsfólk Þingeyjarskóla sérstaka áherslu á lestur og lestrartengda vinnu þegar skólinn stóð fyrir lestrarátaki undir yfirskriftinni Læsismánuður. Markmið átaksins var að efla lestraráhuga, hvetja til aukins lesturs og skapa jákvæða umræðu um mikilvægi læsis í skólasamfélaginu. Nemendur tóku virkan þátt í fjölbreyttum verkefnum og áskorunum sem tengdust lestri, bókum og lestrarmenningu. Óhætt er að segja að verkefnið hafi tekist mjög vel. Það var bæði ánægjulegt og hvetjandi að fylgjast með nemendum og starfsfólki taka þátt af krafti, lesa, ræða bækur og takast á við skemmtilegar lestrartengdar áskoranir. Í tengslum við verkefnið færði Sparisjóður Suður-Þingeyinga skólanum veglega peningagjöf sem nýtt var til bókakaupa fyrir bókasafn skólans. Gjöfin mun styrkja bókakost skólans og nýtast nemendum vel til framtíðar. Þingeyjarskóli þakkar Sparisjóði Suður-Þingeyinga kærlega fyrir þetta rausnarlega framlag og þá jákvæðni sem sparisjóðurinn sýndi verkefninu. Stuðningur sem þessi skiptir miklu máli og stuðlar að því að efla læsi, lestrargleði og fjölbreytta lestrarmenningu meðal nemenda.

Frábær árangur nemenda í lesskilningi og stærðfræði

Frábær árangur nemenda í lesskilningi og stærðfræði. Nemendur í 4. til 10. bekk skólans þreyttu stöðu- og framvindupróf í lesskilningi og stærðfræði í mars síðastliðnum og sýndu svo sannarlega hvað í þeim bjó. Niðurstöðurnar voru frábærar og erum við ákaflega stolt af árangri nemenda okkar. Viðmiðunartölur á landsvísu eru þannig að 21% nemenda mældust undir meðaltali, 58% voru á eða í kringum meðaltal og 21% nemenda mældust yfir meðaltali. Í lesskilningi mældust 45% nemenda Þingeyjarskóla yfir meðaltali, sem var meira en tvöfalt hærra hlutfall en landsmeðaltalið. Þá voru 52% nemenda á eða við meðaltal, og aðeins 2% nemenda mældust undir meðaltali. Í stærðfræðiprófinu mældust 31% nemenda okkar yfir meðaltali, sem var hreint út sagt frábært. Jafnframt voru 51% nemenda á eða við meðaltal og einungis 18% mældust undir meðaltali, sem var einnig undir landsmeðaltalinu. Til hamingju öll með þennan stórkostlega árangur.

Skólaslit Þingeyjarskóla

Skólaslit Þingeyjarskóla verða 1. júní kl. 16:30 í Ýdölum. Allir velkomnir.

Yngsta stig fræðist um humlur

Undanfarnar vikur hafa nemendur á yngsta stigi fræðst um humlur og lifnaðarhætti þeirra. Bókin “Milli himins og jarðar - humlur” var aðal lesefnið og unnu nemendur margvísleg verkefni í tengslum við efnið. Auk þeirra sýnishorn sem eru hér í fréttinni unnu nemendur myndbandsverkefni sem kallast “Lífsferill humlur - frá eggi að flugu” og kom virkilega skemmtilega út. Það hefur verið gaman að fylgjast með nemendum í þessari vinnu og sjá hversu áhugasamir og fróðleiksfúsir þeir hafa verið. Verkefnin eru til sýnis á ganginum fyrir framan stofur yngsta stigs og hvetjum við ykkur til að stoppa við og fræðast um humlur ef þið eigið leið um skólann. (Smellið á fyrirsögnina til að sjá myndir af verkefnum nemenda)

Unglingastig kynnir jarðfræði fyrir gestum og gangandi

Síðastliðnar vikur hafa nemendur á unglingastigi lagt hart að sér í metnaðarfullu samþættingarverkefni samfélags- og náttúrugreina. Markmiðið var að útskýra flókin jarðfræðileg fyrirbæri á þann hátt að fólk á öllum aldri gæti bæði fræðst og haft gaman. Til þess að gera verkefnið enn áhugaverðara þá var lagt upp með að nota einungis endurnýttan efnivið og afganga.

Marimbaferð unglingastigs Þingeyjarskóla

Unglingadeild Þingeyjarskóla er nú stödd í marimbaferð í Svíþjóð og hefur ferðin farið vel af stað.

Minningarorð

Minningarorð um Halldóru Jónsdóttur kennara