Fréttir

Friðarkerti

Nemendur 9. og 10. bekkja munu selja friðarkerti á Haustgleði skólans. Stefnan er sett á Marimbaferð til Danmerkur og Svíþjóðar í vor og er þetta einn liðurinn í því að fjármagna ferðina.

Fréttir frá yngsta stigi

Það var gaman að sjá hve margir mættu í grænum fötum á mánudaginn en þá ræddum við um eineltishringinn og verndarann sem er grænn á litinn. Allir nemendur skólans stimpluðu handafar á sameiginlegt veggteppi sem hangir nú í setustofu skólans. Í þessari viku byrjuðum við á þemaverkefni um bíla. Við erum að lesa bókina "Komdu og skoðaðu bílinn" og hafa krakkarnir unnið margvísleg verkefni í tengslum við bíla. 1. bekkur fékk innlögn á stöfunum Úú og Nn. Í dag, föstudag, var STÁSS tími í umsjón yngsta stigs. Nemendur kynntu þar verkefnið sitt sem heitir "Bílaverksmiðjan" og sýndu þau bílana sem þau hönnuðu sjálf. Krakkarnir stóðu sig mjög vel og var gaman að sjá þau koma fram og sýna afrakstur vinnu sinnar. Haustgleði undirbúningur er nú í fullum gangi og ganga æfingar vel. Nemendur í 3.- 4. bekk fóru yfir í Ýdali í dag á sína fyrstu æfingu og gekk það mjög vel.

Haustgleði Þingeyjarskóla 20.11.2025

Haustgleði Þingeyjarskóla verður haldin fimmtudaginn 20.11.2025 og hefst skemmtunin kl. 18:00. Unglingastigið ásamt nemendum úr 3. - 4. bekk setja upp leikritið Kardemommubærinn. Miðaverð 2000 krónur fyrir fullorðna. 500 krónur fyrir börn á grunnskólaaldri. Frítt fyrir leikskólabörn og grunnskólanemendur Þingeyjarsveitar. Sjoppa á staðnum en athugið að enginn posi er til staðar. Ball eftir sýningu. Öll velkomin. Nemendur og starfsfólk Þingeyjarskóla

Galdrafárið á Íslandi

Nemendur á miðstigi hafa undanfarið unnið spennandi verkefni um galdrafárið á Íslandi á 17. öld. Þar kynntu þau sér tímabil þar sem fólk óttaðist galdra og margir voru sakaðir um að nota rúnir og galdrastafi til að hafa áhrif á aðra. Þau hafa legið yfir heimasíðu Galdrasýningarinnar á Ströndum og skoðað þar rúnir, galdrastafi og sögur af fólki sem sakað var um galdra. Einnig hafa þau velt fyrir sér hvernig samfélagið var á þessum tíma – hvernig ótti, trú og fáfræði höfðu áhrif á líf fólks og ákvarðanir þess. Á ganginum fyrir framan stofuna hafa nemendur sett upp tímalínu yfir allar galdrabrennurnar sem áttu sér stað á Íslandi á 17. öld. Verkefnið hefur vakið mikinn áhuga og nemendur verið forvitnir, gagnrýnir og skapandi í vinnu sinni. Við hvetjum alla sem eiga leið í skólann til að labba inn ganginn og skoða tímalínuna á ganginum – þar er margt áhugavert að sjá!

Stáss tími í umsjón miðstigs

Fréttir af miðstigi Undanfarnar vikur hafa nemendur á miðstigi unnið hörðum höndum í verkefnavinnu í tengslum við bókina Benjamín dúfu. Nemendur útbjuggu fallega veggmynd af hverfinu og persónum í sögunni sem prýðir stofu nr 6. Einnig eru kynningar á persónum sögunnar sem og munir riddaranna í Rauðu reglunni. Þar að auki var útbúið fréttabréf með allskonar fréttum sem tengjast sögunni. Nemendur sömdu nýjan endi á söguna því sumum fannst endirinn of sorglegur. Nemendur eiga hrós skilið fyrir þessa vinnu. Á fimmtudaginn 23. október var STÁSS tími í umsjón miðstigs þar sem nemendur kynntu afrakstur verkefnisins. Í lok Stásstímans var Húsbandið með söngstund.

Samstarf milli skólastiga - styrkur samrekinna leik- og grunnskóla

Fréttir frá unglingastigi

Í þessari viku hefur ýmislegt verið um að vera. Fyrst má nefna framhaldsskóla heimsókn 9. og 10. bekkjar til Akureyrar. Við heimsóttum MA, VMA og heimavistina. Vel var tekið á móti okkur á öllum þessum stöðum og fengu nemendur gríðarlega mikið af upplýsingum sem vakið hafa þau til umhugsunar um hvað þau ætli sér að gera þegar grunnskólagöngu þeirra lýkur. Nemendur fengu svar frá sveitarstjóra við bréfi sem þau sendu frá sér í síðustu viku um framgang mála við salernis- og fatahengismál þeirra. Sveitarstjóri þakkaði fyrir bréfið og hrósaði þeim fyrir áhuga þeirra á vinnuumhverfi sínu. Sagði jafnframt að málið yrði tekið fyrir á næsta sveitarstjórnarfundi þann 9. október. Í dag, föstudag, kynntu nemendur barnabókina sína Geiminn fyrir öllum skólanum og gekk kynningin mjög vel.

Listaverk nemenda prýða skólann okkar

Nemendur hafa lagt mikla vinnu í fjölbreytt listaverk á síðustu vikum og afraksturinn gleður augað. Listaverkin prýða nú veggi skólans og gera umhverfið hlýlegra, litríkara og nærandi fyrir okkur öll.

Stáss tími dagsins

Samstund - STÁSS tími Reglulega yfir veturinn er frátekinn tími sem notaður er sem samverustund þar sem allir nemendur skólans koma saman. Tímann má m.a. nota til að vera með söngstund eða aðrar uppákomur eins og að kynna áhugaverð verkefni.

Heimsókn frá Eistlandi

Þingeyjarskóli hafði afar skemmtilega heimsókn nú í vikunni. Ilona Laido fyrrverandi kennari við tónlistardeildina okkar kom í heimsókn ásamt þremur kollegum sínum. Þetta var hluti af Erasmusverkefni sem þær taka þátt í. Markmiðið var að kynnast fyrirkomulagi tónlistarkennslu í skólanum okkar og fá að fylgja kennurum eftir við störf. Ilona og félagar dvöldu í fjóra daga hjá okkur og enduðu veru sína hjá okkur með þátttöku í STÁSS tíma þar sem þær sungu fyrir okkur lag á eistnesku. Það var afskaplega gaman að fá Ilonu til okkar í heimsókn.