Fréttir

Haustgleði Þingeyjarskóla 19.11.2026

file:///C:/Users/johannrunar/OneDrive%20-%20%C3%9Eingeyjarsk%C3%B3li/Pictures/2026-2027/Haustgledi_Thingeyjarskola_Ovitar_leidrett.pdf

Leikskólakennari í framtíðarstarf

Viltu vinna í skemmtilegu umhverfi, með frábærum nemendum og með góðu samstarfsfólki? Ef svo er ættir þú að íhuga starf í Þingeyjarskóla.

Stáss tími í umsjón miðstigs

STÁSS-stund um Vigdísi Finnbogadóttur Nemendur á miðstigi sáu um STÁSS-stund vikunnar og kynntu afrakstur þemaverkefnis sem þau hafa unnið að undanfarnar vikur. Verkefnið fjallaði um Vigdísi Finnbogadóttur, fyrsta lýðræðislega kjörna kvenforseta heims. Hugmyndin um að læra um Vigdísi kom frá nemendum sjálfum í hugarstormi við upphaf skólaársins. Þau lögðu mikinn metnað í verkefnið og það var gaman að fá að kynnast Vigdísi betur með þeim.

Svakalega lestrarkeppnin

Niðurstöður úr Svakalegu lestrarkeppninni eru komnar. Nemendur í 1. - 7. bekk Þingeyjarskóla tóku þátt og stóðu sig frábærlega og höfnuðu í 24. sæti af 106 skólum sem tóku þátt. Samanlagt lásu nemendurnir okkar í tæplega 30 þúsund mínútur, sem er sannarlega glæsilegur árangur hjá þeim. Umræðan hjá okkur í morgun var á þá leið að taka aftur þátt á næsta ári og stefna á að gera enn betur. Við erum afskaplega stolt af nemendum okkar. Takk kærlega fyrir stuðninginn við lestur barnanna heima.

Að láta rödd sína heyrast

Þegar nemendur á miðstigi fréttu að leggja ætti niður sjónvarspsþáttinn Kappsmál ákvaðu þeir að láta í sér heyra. Þeir skrifuðu dagskrárstjóra bréf þar sem þeir lýstu skoðunum sínum og færðu rök fyrir því að þátturinn ætti að halda áfram. Um leið fóru þeir í gegnum það hvernig bréf eru byggð upp og hvað greinir formleg bréf frá persónulegum. Þarna gafst gott tækifæri til að tengja námið við umræðuna í samfélaginu og sýna nemendum hvernig þeir geta komið skoðunum sínum á framfæri. 

Alþjóðlegi læsisdagurinn

Alþjóðlegur dagur læsis er í dag, 8. september. Af því tilefni var STÁSS stund í Þingeyjarskóla. Tónlistardeildin hóf daginn með nemendum og saman sungu þau nokkur íslensk lög. Að því loknu tóku nemendur og starfsfólk þátt í yndislestri þar sem allir settust niður, lásu í hljóði og nutu stundarinnar. Einnig gátu nemendur hlýtt á upplestur í einni stofunni. Læsi birtist með fjölbreyttum hætti í daglegu lífi okkar og nær meðal annars til lesturs, hlustunar, tals og ritunar. Við hvetjum nemendur og fjölskyldur þeirra til að gefa sér tíma til að lesa, ræða saman, hlusta og njóta tungumálsins. Slíkar stundir efla orðaforða, skilning og tjáningu og geta um leið veitt bæði gleði og ánægju.

Breyting á námsumsjónakerfi Þingeyjarskóla

Í vor var tekin sú ákvörðun að skipta úr námsumsjónakerfinu Mentor yfir í Námfús. Ástæða þessa er sú að það kerfi er í hinum skólunum í sveitarfélaginu og þykir ekki síðra en Mentor. Við fengum þó fyrst aðgang að kerfinu í dag 18. ágúst, þannig að við höfum ekki getað nýtt okkar það í undirbúningsvinnunni. Sá böggull fylgir skammrifi að það þarf að yfirfæra ýmsar upplýsingar s.s. nöfn og netföng aðstandenda yfir í nýja kerfið. Því miður var ekki hægt að taka þau beint útúr Mentor kerfinu þannig að við erum að handvinna þetta inn í kerfið. Í einhverjum tilvikum erum við ekki með netfangalista aðstandenda og erum að ráða bót á því.

Laust starf skólaliða (blandað starf) í Þingeyjarskóla

Viltu vinna í skemmtilegu umhverfi, með frábærum nemendum og með góðu samstarfsfólki? Ef svo er ættir þú að íhuga starf í Þingeyjarskóla. Við viljum fá til liðs við okkur: Skólaliða (blandað starf) í 100% starf frá og með 15. ágúst. Við leitum að skólaliða sem: • Treystir sér í faglega og metnaðarfulla vinnu • Er lausnamiðaður • Er sveigjanlegur og með góða samskiptahæfni • Er sjálfstæður í vinnubrögðum og sýnir/býr yfir frumkvæði • Hefur metnað til að takast á við ný og spennandi verkefni • Vill taka þátt í samstarfi og teymisvinnu • Ber virðingu fyrir börnum og hefur áhuga á að starfa með þeim Þingeyjarskóli er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli með rétt um 90 nemendur. Þar af um 30 leikskólanemendur á tveimur starfsstöðvum. Áhersla er lögð á teymisvinnu og fjölbreytta kennsluhætti innan skólans sem og að skapa leik- og námsumhverfi sem auðgar bernsku barna og örvar þroska þeirra. Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna á verkefnum skólans. Gerðar eru kröfur um mikla hæfni í mannlegum samskiptum, stundvísi og hreint sakavottorð. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Umsóknir skulu sendast á netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is Nánari upplýsingar veitir Jóhann Rúnar Pálsson skólastjóri grunnskóla- og tónlistardeildar í vs. 4643580 /8990702 eða í gegnum netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is

Skólasetning verður kl. 16:30 föstudaginn 21. ágúst n.k.

Skólasetning fer fram í húsnæði grunnskóladeildarinnar.

Vegleg gjöf Sparisjóðs Suður Þingeyinga

Læsismánuður í Þingeyjarskóla tókst vel Í febrúar lögðu nemendur og starfsfólk Þingeyjarskóla sérstaka áherslu á lestur og lestrartengda vinnu þegar skólinn stóð fyrir lestrarátaki undir yfirskriftinni Læsismánuður. Markmið átaksins var að efla lestraráhuga, hvetja til aukins lesturs og skapa jákvæða umræðu um mikilvægi læsis í skólasamfélaginu. Nemendur tóku virkan þátt í fjölbreyttum verkefnum og áskorunum sem tengdust lestri, bókum og lestrarmenningu. Óhætt er að segja að verkefnið hafi tekist mjög vel. Það var bæði ánægjulegt og hvetjandi að fylgjast með nemendum og starfsfólki taka þátt af krafti, lesa, ræða bækur og takast á við skemmtilegar lestrartengdar áskoranir. Í tengslum við verkefnið færði Sparisjóður Suður-Þingeyinga skólanum veglega peningagjöf sem nýtt var til bókakaupa fyrir bókasafn skólans. Gjöfin mun styrkja bókakost skólans og nýtast nemendum vel til framtíðar. Þingeyjarskóli þakkar Sparisjóði Suður-Þingeyinga kærlega fyrir þetta rausnarlega framlag og þá jákvæðni sem sparisjóðurinn sýndi verkefninu. Stuðningur sem þessi skiptir miklu máli og stuðlar að því að efla læsi, lestrargleði og fjölbreytta lestrarmenningu meðal nemenda.